Par hefur verið handtekið með rúmlega hundrað egg frá villtum íslenskum fuglum og fimm lifandi hrossagauksunga á Seyðisfirði. Fólkið, sem er frá Evrópu, var á leiðinni úr landi á bíl sínum með Norrænu.Eggin voru geymd í sérútbúnum hitatöskum og fundust við leit tollgæslu og lögreglu.Fuglategundirnar voru meðal annars lundi, rjúpa, heiðlóa, spói, æðarfugl, lómur, hrossagaukur, rita og önd.„Við greiningu naut lögregla aðstoðar Náttúrufræðistofnunar Íslands og Náttúrustofu Austurlands sem í beinu framhaldi af haldlagningu tóku bæði egg og unga undir sinn verndarvæng. Þá var MAST upplýst um málið,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi.Fólkið var yfirheyrt samdægurs og búnaður þess handlagður. Því var í gær birt sektargerð sem parið hefur samþykkt og greitt.