Erlendum námsmönnum sett strangari skilyrði

Alþingi samþykkti í dag að herða skilyrði fyrir dvalarleyfi erlendra nema með breytingum á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga.Með breytingunni ber erlendum nemum að sýna reglulega fram á námsárangur, fjölskyldusameining þeirra takmarkast við maka og börn og dvalarleyfi vegna atvinnuleitar að námi loknu styttist í úr þremur árum í 18 mánuði.Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að með breytingunni verði framkvæmdin færð nær því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndunum. Tölur hafi sýnt óeðlilega ásókn í dvalarleyfi námsmanna á stuttum tíma og niðurstöður starfshóps leitt í ljós að íslenskt regluverk var rýmra en annars staðar á Norðurlöndunum.„Hér erum við að herða skilyrði til að stemma stigu við misnotkun á dvalarleyfiskerfinu í gegnum námsmannaleyfi. Erlendir
Erlendum námsmönnum sett strangari skilyrði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd