Vöruskemman við Álfabakka 2A, hið svokallaða „Græna gímald“, hefur angrað íbúa við Árskóga í Breiðholti allt frá því ljóst varð hversu stór hún yrði.Búseti hefur tvívegis kært byggingarleyfi fyrir húsið til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og óskað eftir að leyfið verði fellt úr gildi, framkvæmdir stöðvaðar og mannvirkið fjarlægt.Í janúar á síðasta ári fól borgarstjórn innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) að gera úttekt á skipulagsferli við Álfabakka 2A. Er það mat IER að annmarkar hafi verið á stjórnsýslu og leyfisferlum í tengslum við uppbyggingu á lóðinni. Í kjölfarið voru lagðar til 12 úrbótatillögur sem borgarráð vísaði í dag til umhverfis- og skipulagssviðs. RÆÐA VIÐ ÍBÚA UM AÐ BÆTA NÆRUMHVERFI Borgarráð samþykkti líka tillögur um að hefja formlegar viðræður við eigendur