Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis leggur til að 19 einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt með lögum frá Alþingi.Nefndinni bárust 166 umsóknir um ríkisborgarrétt á vorþingi 157. löggjafarþings og leggur til að 14 þeirra verði samþykktar auk fjögurra barna umsækjenda. Að auki leggur nefndin til að einum verði veittur ríkisborgararéttur vegna misritunar í lögum.Tvær leiðir eru færar til að fá íslenskan ríkisborgararétt. Önnur er að sækja um til Útlendingastofnunar, hin að sækja um til Alþingis.Allsherjar- og menntamálanefnd vill að allir verði að sækja um ríkisborgararétt til Útlendingastofnunar áður en þeir senda inn umsókn til Alþingis og hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um það.