„Okkur er ekki að takast að bæta lífskjör með viðlíka hraða og áður fyrr“

Landsframleiðsla á hvern landsmann hefur staðið í stað síðustu sjö ár.„Það merkir það að okkur er ekki að takast að bæta lífskjör með viðlíka hraða og við gerðum hérna áður fyrr,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Hann segir fjölmarga þætti útskýra þetta.Í nýrri greiningu fara SI yfir þá og með hvaða hætti sé hugsanlega hægt að snúa þróuninni við.„Við bendum sérstaklega á að þeir þættir sem skýra ólíka samkeppnisstöðu og ólíka þróun í landsframleiðslu á mann milli landa eru þættir sem varða mannauð, nýsköpun, starfsumhverfi, innviði og síðan orku- og umhverfismál,“ segir Ingólfur.Hann segir að hugsanlega megi snúa þróuninni við með því að bæta stöðu Íslands á þessum sviðum.Þess má þó einnig geta að síðustu ár hafa verkalýðsfélög samið um styttri vinnuviku sem gæti
„Okkur er ekki að takast að bæta lífskjör með viðlíka hraða og áður fyrr“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd