SJÁ: Nýr vettvangur fyrir Evrópuumræðuna

Stofnfundur félagasamtakanna SJÁ verður haldinn á Kjarvalsstöðum í dag kl. 18 til 20 og er opinn öllum. SJÁ er samkvæmt fréttatilkynningu nýr vettvangur fyrir  uppbyggilega og skynsama umræðu um framtíð Íslands og tækifærin sem geta falist í því að sjá samning við Evrópusambandið. Já til að sjá!Þrír einstaklingar úr ólíkum áttum samfélagsins hafa tekið höndum saman  og stofnað félagasamtök með það fyrir augum að skapa vettvang til að koma saman og ræða framtíð Íslands á opinn og jákvæðan hátt - óháð stjórnmálaskoðunum.
SJÁ: Nýr vettvangur fyrir Evrópuumræðuna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd