Vesturbæjarvíðirinn snýr aftur til upprunans: „Hann er kominn heim“

Snemma á síðustu öld skaut upp kollinum víðitegund í Vesturbæ Reykjavíkur af svo miklum krafti að vexti hennar var líkt við lygasögu. Talið er að saga vesturbæjarvíðis (salix x smithiana) á Íslandi hafi hafist 1910 þegar Jón Eyvindsson, kaupmaður og garðunnandi, bjó að Stýrimannastíg 9. Hann pantaði haustlauka frá Þýskalandi og þeir bárust í tágakörfu sem var fléttuð úr víðiteinungum. Ísleifur sonur Jóns á að hafa tekið eftir því að líf var enn í sumum teinungunum. Hann setti einn niður og úr varð tré sem óx hratt og auðvelt var að fjölga. Tegundin var kölluð vesturbæjarvíðir en er í raun blendingur selju, körfuvíðis og líklegast gráselju. Þeir feðgar gáfu nágrönnum græðlinga og því er hægt að finna einn og einn vesturbæjarvíði á stangli. Tréð sem kom upp hjá Jóni á Stýrimannastígnum er þó
Vesturbæjarvíðirinn snýr aftur til upprunans: „Hann er kominn heim“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd