Hryðjuverkamálið: Sindri í 18 mánaða fangelsi og Ísidór í 15 mánaða

Landsréttur dæmi í dag Sindri Snæ Birgisson í 18 mánaða fangelsi og Ísidór Nathansson í 15 mánaða fangelsi fyrir vopnalagabrot. Landsréttur sýknaði tvímenningana af ákæru um tilraun til hryðjuverka. Er þetta í annað sinn sem Landsréttur kveður upp dóm í málinu en Hæstiréttur ómerkti fyrri dóm Landsréttar. Hæstiréttur taldi galla hafa verið á sönnunarmati Landsréttar og vísaði málinu aftur þangað til  endurnýjaðrar meðferðar.Þetta staðfestir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður Sindra í samtali við DV en dómurinn var kveðinn upp kl. 15.
Hryðjuverkamálið: Sindri í 18 mánaða fangelsi og Ísidór í 15 mánaða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd