Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona er látin, áttatíu og sex ára að aldri. Hún var fjölhæf listakona og hlaut Edduverðlaun í tvígang, fyrst árið 1999 fyrir leik sinnn í kvikmyndinni Englar Alheimsins, og síðar árið 2012 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Eldfjall. Árið 2024 hlaut Margrét Helga heiðursverðlaun Grímunnar þar sem henni voru þökkuð framúrskarandi og ómetanleg störf í þágu íslenskrar leiklistar í meira en hálfa öld.