Margrét Helga Jóhannsdóttir látin

Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin. Hún lést í gær 86 ára að aldri.Margrét Helga var fædd árið 1940. Hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1967 og starfaði eftir í Þjóðleikhúsinu til ársins 1972. Þá hóf hún áratuga langan og farsælan feril hjá Leikfélagi Reykjavíkur.Enginn íslenskur leikari hefur leikið fleiri hlutverk í verkum Laxness en Margrét Helga. Hún lék meðal annars Uglu í Atómstöðinni og Sigurlínu í Sölku Völku.Margrét Helga var máttarstólpi í starfi Leikfélags Reykjavíkur og lék til að mynda launalaust í miðnætursýningum leikfélagsins til að safna fyrir byggingu Borgarleikhússins. HEIÐURSVERÐLAUNAHAFI GRÍMUNNAR Á ferlinum lék Margrét Helga yfir 200 hlutverk í sviðsverkum, útvarpsleikritum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.Hún hlaut Grímuverðlaun sem
Margrét Helga Jóhannsdóttir látin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd