Jamie Varley, menntaskólakennari í Blackpool á Englandi, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Hann myrti hinn 13 mánaða Preston Davey, sem hann og sambýlismaður hans höfðu ættleitt árið 2023 eftir að hafa misþyrmt honum og misnotað mánuðum saman.Varley hélt því fram eftir dauða drengsins í júlí 2023 að hann hefði drukknað í baði. Krufning leiddi hins vegar í ljós 40 mismunandi áverka á barninu en engin merki um drukknun. Varley var að auki sakfelldur fyrir kynferðislega misnotkun, þar á meðal 13 óviðeigandi ljósmyndir og myndskeið af barninu.Sambýlismaður hans, John McGowan-Fazakerley, var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot, barnaníð og að gera ekkert til að koma í veg fyrir dauða barnsins. SAGÐI EFTIR VIKU AÐ DRENGURINN VÆRI DAUÐANS MATUR Preston