Breskt par á fimmtugsaldri, þau Angela Lousie Derbyshire og Darren Christopher Rollisson, hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnabrot.<p>Þau eru sökuð um að hafa sunnudaginn 12. apríl 2026 staðið saman að innflutningi á tæplega 32 kílóum af amfetamíni. Þau földu efnin hvort í sinni ferðatöskunni, skipt um það bil til helminga. Parið var að koma með flugi frá Manchester til Keflavíkur.<p>Dómafordæmi gefa til kynna að innflutningur á svo miklu magni af amfetamíni geti leitt til margra ára fangelsisdóms.<p>Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 16.