Chelsea skoðar að nota Jackson sem skiptimynt

Chelsea er sagt vera að skoða möguleikann á að nota Nicolas Jackson sem hluta af samkomulagi við Juventus til að fá ítalska bakvörðinn Andrea Cambiaso til Stamford Bridge.Samkvæmt fréttum á Ítalíu hefur Chelsea mikinn áhuga á Cambiaso, sem er talinn mögulegur arftaki Marc Cucurella eftir brottför hans til Real Madrid. Juventus hefur hingað til metið hinn 26 ára gamla landsliðsmann Ítalíu á um 35 milljónir punda, en áhugasamir kaupendur hafa ekki viljað greiða þá upphæð.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd