Vöruhönnuðurinn Svana Lovísa Kristjánsdóttir sem rekur verslunina og vinnustofuna Stúdíó Flamingo í Hafnarfirði hefur undanfarið unnið ásamt fatahönnuðinum Andreu Magnúsdóttur við að sauma blóm á skó og annað í sama heimi blóma og hönnunar. Vala Matt kynnti sér sköpunargleði þeirra vinkvenna í nýjasta þætti Ísland í dag.