Vilja endurskoða lög um veitingu ríkisborgararéttar

Allsherjar- og menntamálanefnd vill að fólk verði að sækja um ríkisborgararétt til Útlendingastofnunar áður en það sendir inn umsókn til Alþingis um að fá veittan ríkisborgarrétt með lögum.Nefndin hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að dómsmálaráðherra verði látinn skoða lög og framkvæmd vegna veitingar ríkisborgararéttar. Nefndin vill tryggja að skýrt verði hvernig ríkisborgararéttur er veittur með lögum frá Alþingi og með stjórnvaldaákvörðun Útlendingastofnunar, einnig að ljóst sé hvernig mörkin og samspilið milli þessara leiða eru.Tvær leiðir eru færar til að fá íslenskan ríkisborgararétt. Önnur er að sækja um til Útlendingastofnunar, hin að sækja um hann til Alþingis. Þingnefndin vill að báðar leiðir verði áfram færar en að fólk verði alla jafna að nýta stjórnsýsluleið Útlend
Vilja endurskoða lög um veitingu ríkisborgararéttar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd