Niðurskurður er fram undan á framhaldsskólastiginu, sem nemur um fjórum milljörðum króna á ári samkvæmt nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Skólameistari Menntaskólans á Akureyri var ómyrkur í máli gagnvart barna- og menntamálaráðherra í ræðu sinni við brautskráningu skólans í gær.„Það sem virðist vera að gerast er að það er verið að þrengja að framhaldsskólastiginu varðandi fjárveitingar. Nýsamþykkt fjármálaáætlun segir allt sem segja þarf. Fyrir allt skólastigið er þetta um 4 milljarðar á ári sem á að draga úr framlögum á fjármálaáætlun. Ég á mjög erfitt með að trúa því að þetta sé vilji stjórnvalda að draga úr mætti og menntun á heilu skólastigi með þessum hætti,“ segir Karl Frímannsson, skólameistari MA í samtali við fréttastofu. MIKILL HALLI Á REKSTRI MA UNDANFARIN ÁR MA hefur