Meiri halli en búist var við

Borgarsjóður var rekinn með 4,6 milljarða króna halla fyrstu þrjá mánuði ársins. Þetta er betri niðurstaða en á síðasta ári en verri en stefnt hafði verið að.Afkoma borgarsjóðs var 1,6 milljörðum króna lakari en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Þar ræður mestu að fjármagnsgjöld voru 1,5 milljörðum yfir áætlun vegna meiri verðbólgu en miðað var við í áætlunargerð.Ráðhús Reykjavíkur.RÚV / Ari Páll Karlsson
Meiri halli en búist var við

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd