Grand Theft Auto VI kemur í forsölu í næstu viku

Áralangri bið tölvuleikjaunnenda eftir leiknum Grand Theft Auto VI er að ljúka. Framleiðendur tilkynntu í dag að forsala leiksins hefjist í næstu viku og að hann verði gefinn út 19. nóvember. Leikurinn Grand Theft Auto kom fyrst fyrir sjónir tölvunotenda 2001 og naut strax mikilla vinsælda. Hann kom út í nokkrum útgáfum næstu árin en þrettán ár eru nú liðin frá því Grand Theft Auto V kom út. Sú útgáfa er næstmest seldi tölvuleikur allra tíma.Þróun nýjustu útgáfunnar hófst ári síðar, 2014, en hefur dregist á langinn og útgáfu verið frestað í tvígang.Nú sér fyrir endann á þróun og framleiðslu Grand Theft Auto VI. Aðdáendur leikjanna hafa beðið spenntir. Til stóð að hann kæmi út í maí en í nóvember í fyrra varð ljóst að hálfs árs töf yrði á útgáfunni.
Grand Theft Auto VI kemur í forsölu í næstu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd