Hæstiréttur dæmdi Þorstein Hermann Þorbjörnsson í dag til 14 ára fangelsisvistar fyrir að verða sambýliskonu sinni að bana og fyrir brot í nánu sambandi.Þorsteinn réðst á konuna aðfaranótt 22. apríl á heimili þeirra á Akureyri. Hann hafði ítrekað beitt sambýliskonu sína margþættu ofbeldi í 25 ár. Sú saga um ofbeldisverk mannsins átti sinn þátt í því að dómstólar komust að ólíkum niðurstöðum um hvort að hann hefði ætlað sér að drepa konuna sína eða drepið hana af gáleysi þegar hann beitti hana ofbeldi.Í dómi Hæstaréttar kemur fram að Þorsteinn hefur ekki sýnt nein merki iðrunar. Þar segir jafnframt að hann eigi sér engar málsbætur.Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi manninn fyrir manndráp af gáleysi og dæmdi hann til 12 ára fangelsisvistar. Dómurinn taldi ekki sannað að maðurinn hefði