Sérfræðingur í hrávörumörkuðum segir bjartsýni á olíumarkaði eftir undirritun viljayfirlýsingar Bandaríkjanna og Írans. Samkomulagið sé þó brothætt og erfitt að meta framtíðarhorfur.Olíumarkaðir tóku við sér þegar útlit varð fyrir að Bandaríkjamenn og Íranar gætu komist að samkomulagi um lok stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.Markaðir lækkuðu hratt og eru um 40% lægri en þegar hæst var.Brynjólfur Stefánsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslandssjóðum, segir að búast megi við að olíuverð á Íslandi fylgi verðþróun á heimsvísu að einhverju leyti.„Við sjáum kannski ekki alveg jafnmikil áhrif hérna heima bara út af því að það eru allskonar gjöld og slíkt sem koma inn í bensínverð hér og auðvitað erum við alltaf að versla olíuvörur en ekki hráolíu, en það má alveg búast við því að olíu-