Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar

Jón Björn Hákonarson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar. Frá þessu segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.Jón Björn hefur unnið að sveitarstjórnarmálum frá 1994. Hann var meðal annars í bæjarstjórn Fjarðabyggðar og forseti bæjarstjórnar á árunum 2010 til 2020 og bæjarstjóri frá 2020 til 2023.Þá hefur Jón Björn sinnt margvíslegum trúnaðarstörfum og er í dag formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.Í tilkynningunni segir að sveitarstjórn bindi vonir við að „reynsla Jóns Björns, víðtækt tengslanet og skýr sýn á þróun sveitarfélaga muni nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu Eyjafjarðarsveitar og í þjónustu við íbúa samfélagsins“.25 sóttu um starfið, en 10 drógu umsögnina til baka. * Auður Thorberg * Bragi Þór Thoroddsen * Einar Kristján Jónsson * Elísabet Friðriksdót
Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd