Auka framlög ríkisins í almenna íbúðakerfinu

Frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar félags- og húsnæðismálaráðherra um hækkun stofnframlaga ríkisins til byggingar óhagnaðardrifinna leiguíbúða var samþykkt á Alþingi í morgun. Getur framlagið orðið allt að 23 prósent af stofnverði íbúðar en hlutfallið var áður 18 prósent.Viðbótarframlag til íbúða í eigu sveitarfélaga fyrir námsmenn eða öryrkja hækkar úr 4 í 5 prósent. Frumvarpið var hluti af húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og er ætlað að gera óhagnaðardrifnum leigufélögum kleift að byggja fleiri íbúðir. Lögin öðlast þegar gildi og taka til þeirra stofnframlaga sem veitt hafa verið frá og með nóvember 2025.Þingmenn stjórnarflokkanna greiddu atkvæði með frumvarpinu, Miðflokkur var á móti en þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sátu hjá. Nokkuð hart var tekist á um málið við atkvæð
Auka framlög ríkisins í almenna íbúðakerfinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd