Leiðtogar Bandaríkjanna og Íran undirrituðu í gærkvöld viljayfirlýsingu um 60 daga vopnahlé sem nýtt verður til viðræðna um varanlegan frið. Samningurinn hefur margvíslega þýðingu til skamms tíma en hvað hann gerir til lengri tíma á eftir að koma í ljós.Donald Trump forseti Bandaríkjanna undirritaði viljayfirlýsinguna í kvöldverði við kertaljós í höllinni í Versölum. Þetta má sjá á myndskeiði sem einn af starfsmönnum Trumps setti á Youtube. Esmaeil Baqaei talsmaður utanríkisráðherra Írans staðfesti að ráðherrann hefði einnig skrifað undir.Viljayfirlýsingin milli Bandaríkjanna og Íran kveður á um eftirlit með förgun auðgaðs úrans, tímamörk á hafnbann og umferð um Hormússund og uppbyggingu í Íran. Viðbrögðin eru blendin.Forsætisráðherra Pakistans sagði á X að Íranar myndu undir eins hefja op