Útgáfufélagið Birtingur, sem gefur meðal annars út Vikuna, Gestgjafann og Hús og híbýli, skilaði 733 þúsund króna hagnaði á síðasta ári. Hagnaðurinn dróst verulega saman frá fyrra ári, þegar hann nam 11,6 milljónum króna. Rekstrartekjur félagsins voru 158,8 milljónir króna og lækkuðu um 9,7 milljónir milli ára, eða tæplega sex prósent. Aðrar tekjur jukust hins vegar úr 9 milljónum í...