Lögreglan á Blönduósi er með á sínu borði mál sem kom upp í Víðigerði í gær þegar ökumaður jeppa tók fram úr bílalest með þeim afleiðingum að ökumenn tveggja bifreiða úr gagnstæðri átt þurftu að aka út af veginum til að forða sér frá slysi. Litlu mátti muna að alvarlegur árekstur yrði.