Úkraínumenn gera mestu árásir sínar á Rússland í tvö ár

Reyk og óþef lagði yfir suðurhluta Moskvu í nótt og í morgun eftir umfangsmiklar drónaárásir Úkraínumanna sem beindust meðal annars að olíuhreinsunarstöð í útjaðri borgarinnar.Drónarnir hæfðu nokkra staði í Moskvu en aðaltilgangurinn virðist hafa verið að stöðva starfsemi mikilvægrar olíuhreinsistöðvar í Kapotnija-héraði skammt frá borginni. Árásin kom Moskvubúum algjörlega í opna skjöldu og víða á samfélagsmiðlum mátti sjá fólk lýsa ótta.Myndir sýna svartan reyk stíga upp frá olíuhreinsistöðinni sem leiddi meðal annars til þess að flugvellinum í Moskvu var lokað í nokkrar klukkustundir og nokkur hundruð flugferðum aflýst. Stærsti flugvöllur landsins, Sheremetjevo, var rýmdur um tíma. Hann er níundi stærsti flugvöllurinn í Evrópu.Annar dróni hæfði íbúðahús í Moskvu-héraði og brak úr honum
Úkraínumenn gera mestu árásir sínar á Rússland í tvö ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd