„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“

Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian í Frakklandi. Þar var eindregnum stuðningi lýst við Úkraínu í vörn þeirra gegn innrásarher Rússa. Erlingur telur óheppilegt ef vopnahléssamkomulag Bandaríkjanna og Írans verði kennt við Versali í ljósi þess að friðarsamningarnir eftir fyrri heimsstyrjöld voru gerðir þar og eru af mörgum taldir ein af meginástæðum fyrir seinni heimsstyrjöldinni. Erlingur og Bogi ræddu strategíska stöðu Bandaríkjanna og Írans. Margir fréttaskýrendur telja að þrátt fyrir hernaðarlega yfirburði hafi Bandaríkin beðið strategískan ósigur og staða klerkastjórnarinnar á Íran sé á margan hátt sterkari en áður en Bandaríkin og Ísraelsmenn h
„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd