„Við í Landssambandi eldri borgara (LEB) höfum ályktað um það að við óskum eftir því að fá okkar eigin umboðsmann sem sinnir eingöngu málefnum aldraðra á sama hátt og umboðsmaður barna sinnir málefnum barna, og teljum að það sé nauðsynlegt og eðlilegt skref,“ segir Sigurður Ágúst Sigurðsson varaformaður LEB.