Rúmlega 2.000 króna verðmunur á lambalærinu

Prís býður upp á lægsta verðið af íslenskum matvælaverslunum og næstar koma Bónus og Krónan, samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands. Prís var oftast með lægsta verðið og þar var matarkarfan ódýrust þegar ASÍ kannaði verðið.Verðlagseftirlitið fór í Bónus, Krónuna, Nettó, Hagkaup, Krambúðina, Kjörbúðina, Fjarðarkaup, Prís og SPAR. Kannað var verð á 289 vörum. Prís var oftast með lægsta verðið í öllum helstu vöruflokkum. Verðið var 5,5 prósentum hærra í Bónus, 6,0 prósentum hærra í Krónunni og 11 prósentum hærra í Nettó.Verðlagseftirlitið tiltekur nokkrar vörur þar sem mikill verðmunur var milli verslana.2.180 krónum munaði á kílóverðinu á Lúxus lambalæri frá Kjarnafæði. Ódýrast var það í Prís, þar sem kílóið kostaði 2.599 krónur, en dýrast í Nettó, sem rukkaði 4.779 k
Rúmlega 2.000 króna verðmunur á lambalærinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd