Bylting í notkun gervigreindar ásamt annars konar kröfum viðskiptavina munu að mati Axcel umbreyta rekstrarumhverfi lögmannsstofa á næstu árum með svipuðum hætti og orðið hefur í endurskoðunar- og ráðgjafargeiranum. Norræna sjóðastýringarfélagið hefur því ráðist í uppbyggingu nýrrar samstæðu viðskiptalögfræðistofa á Norðurlöndum en nýleg fjárfesting í BBA//Fjeldco hluti af þeirri stefnu, útskýrir einn stjórnanda Axcel í ítarlegu viðtali við Innherja, sem er jákvæður á langtímahorfur íslensks efnahagslífs og segir landið hafa sýnt að það „lætur að sér kveða langt umfram“ stærð sína.