Allt að 30 prósenta munur getur verið á vörum á milli verslana. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum, eða á milli 5 til 10 prósent frá lægsta verði. Þetta kemur fram í niðurstöðum verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands (ASÍ). „Niðurstöðurnar undirstrika að neytendur geta sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að bera saman verð milli verslana,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. Lægsta verðið...