Georgíumaður handtekinn grunaður um morð á rússneskum skopmyndateiknara

Semyon Skrepetsky óttaðist pólitískar ofsóknir í Rússlandi og flúði til Póllands 2021.AP/SOTA / Vasily KrestyaninovPólska lögreglan hefur handtekið mann sem er grunaður um að eiga aðild að morði á rússneskum skopmyndateiknara. Frá þessu greinir Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands. Hinn grunaði er með georgískt vegabréf.Robert Kuzovkov, sem gekk undir listamannsnafninu Semyon Skrepetsky, var skotinn til bana í Póllandi á mánudag. Hann gagnrýndi Vladímír Pútín harðlega í verkum sínum.Áður höfðu tveir menn frá Belarús verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Þeim hefur verið sleppt.
Georgíumaður handtekinn grunaður um morð á rússneskum skopmyndateiknara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd