Fjárfestar keyptu hlutabréf fyrir 20,6 milljarða króna í Alvotech. Hlutafjárútboði fyrirtækisins í Bandaríkjunum lauk í gær og höfðu fjárfestar þá keypt rúmlega 26 milljónir hluta á genginu 3,75 dollarar á hlut. Samhliða því voru gerðir áskriftarsamningar við evrópska fjárfesta sem keyptu tæplega 18 milljón hluti á sama gengi.Höfuðstöðvar Alvotech.Alvotech / Stefán Drengsson