„Við erum búin að leggja mikla vinnu í þessa plötu og hlökkum til að deila henni með ykkur. Vonandi hlustið þið með opnu hjarta, segir Fannar Ingi Friðþjófsson, jafnan kenndur við hljómsveitina Hipsumhaps. Breiðskífan Algrím hjartans, nýjasta plata sveitarinnar, kom út á öllum helstu streymisveitum í gær á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní.