Endurskoða veru Bandaríkjahers í Evrópu

Pete Hegseth, stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að ráðuneyti hans ætli að ráðast í endurskoðun á veru Bandaríkjahers í Evrópu. Hann sagði að sú endurskoðun myndi taka hálft ár að hámarki og yrði hugsanlega lokið fyrr.Hegseth ræðir í dag við varnarmálaráðherra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins í höfuðstöðvum þess í Brussel. Hann hrósaði sumum aðildarríkjunum fyrir fundinn fyrir að hafa þegar aukið útgjöld sín til varnarmála en sagði að önnur þyrftu að gera meira. Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði að aðildarríkin væru að stórauka útgjöld sín.Bandaríkin hafa í forsetatíð Donalds Trumps þrýst mjög á Evrópuríki að auka varnarviðbúnað sinn og boðað tilfærslu bandarískra hersveita sem eru í Evrópu.
Endurskoða veru Bandaríkjahers í Evrópu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd