Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, fer hörðum orðum um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar í Dagmálum og segir hana byggða á brostnum forsendum. Hann bendir á að áætlunin byggi á eldri hagspá Seðlabankans frá febrúar en ekki nýrri spá bankans, þar sem horfur séu verri. „Við höfum síðan séð Seðlabankinn koma með nýja spá núna fyrir örfáum vikum síðan, sem er ekki tekið tillit til í þessari fjármálaáætlun, sem er furðulegt,“ segir hann.