Um langa hríð hefur því verið haldið á lofti hér á landi að verðbólgu megi að stofninum til rekja til launahækkana. Sagan er nokkuð einföld og auðskiljanleg: þegar laun hækka þurfa fyrirtækjaeigendur að hækka verð og verðhækkanir leiða til verðbólgu.