Nokkuð blæs í dag, sérstaklega við suðausturströndina og á sunnanverðu Snæfellsnesi þar sem má búast við allt að átján metrum á sekúndu. Mildasta veðrið verður suðvestanlands.Veðurfræðingur á vakt á Veðurstofunni varar við hvössum norðaustan vindstrengjum við suðausturströndina og á sunnanverðu Snæfellsnesi með snörpum vindhviðum fram eftir degi. Það getur verið varasamt ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu, en þrettán til átján við suðausturströndina og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Rigning á norðaustan- og austanverðu landinu, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla.Norðaustan fimm til þrettán, en tíu til fimmtán norðvestantil. Rigning norðan- og austanlands, skúrir á Suðurlandi, en þurrt að kalla vestantil. H