Ísland skipar nú 22. sæti í nýrri úttekt IMD-háskólans í Sviss á alþjóðlegri samkeppnishæfni og fellur um sjö sæti milli ára. Lækkunin markar skarpa breytingu frá þróun undanfarinna ára, þar sem frá árinu 2010 hefur samkeppnishæfni landsins aukist jafnt og þétt en Ísland hefur ekki mælst jafn neðarlega á listanum síðan árið 2017.