Kommúnistaflokkurinn á Kúbu samþykkti í gær aðgerðapakka í tuttugu liðum sem miðar að því að auka einkafjárfestingar á eyjunni. Þetta er einn stærsti aðgerðapakki sem stjórnvöld hafa lagt til á síðustu árum.Stjórnvöld vonast til að Kúbverjar búsettir erlendis fjárfesti á eyjunni. Þá ætla stjórnvöld að skera niður með því að fækka ráðuneytum og opinberum starfsmönnum.Aðgerðunum er ætlað að styrkja hagkerfið sem hefur verið í lamasessi síðan Bandaríkjastjórn setti viðskiptaþvinganir á Kúbu í janúar og ýmsar refsiaðgerðir.Mikill skortur hefur verið á ýmsum nauðsynjum á eyjunni undanfarna mánuði með alvarlegum afleiðingum fyrir íbúana. Eldsneyti hefur verið af skornum skammti, sömuleiðis matur, drykkjarvatn og jafnvel lyf. Mikið rafmagnsleysi hefur verið á eyjunni, stundum allt að þrjátíu tíma