Í dag verður norðaustan 8-15 m/s en 13-18 m/s við suðausturströndina og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Á Norðausturlandi og á austanverðu landinu verður rigning en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti verður á bilinu 6 til 15 stig og verður mildast suðvestanlands.