Nú geta eiginlegar friðarviðræður hafist

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði samninginn við Íran á kvöldverðarfundi með Emmanuel Macron Frakklandsforseta í Versölum í kvöld. Stjórnvöld í Íran hafa staðfest að forseti Írans, Masoud Pezeshkian, hafi einnig skrifað undir samninginn.Samningurinn sem forsetar Bandaríkjanna og Íran hafa undirritað er viljayfirlýsing um að þjóðirnar ætli að binda endi á stríðsátökin í Mið-Austurlöndum. Eiginlegar friðarviðræður og samningaviðræður geta því hafist og opnun Hormússundsins er fyrsta skrefið. Bandaríkin ætla að aflétta herkví sinni í Persaflóa og jafnframt aflétta viðskiptaþvingunum á olíuiðnað Írana sem hafa lamað hagkerfi landsins.Í gær greindu bandarískir embættismenn fjölmiðlum einnig frá fjórtán meginatriðum viljayfirlýsingarinnar milli Bandaríkjanna og Írans. Þar segir meðal an
Nú geta eiginlegar friðarviðræður hafist

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd