Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði samninginn við Íran í Versölum í kvöld í kvöldverðarboði með Emmanuel Macron forseta Frakklands. Íranar hafa staðfest að þeir hafi einnig skrifað undir samninginn.Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarpaði fjölmiðla að loknum þriggja daga leiðtogafundi G7-ríkjanna í dag. Í morgun greindu fulltrúar ríkjanna frá því að vel hefði gengið á fundinum.Þar undirrituðu leiðtogarnir sameiginlega viljayfirlýsingu þar sem kallað er eftir friði við Íran, vopnahléi í Líbanon og óhagganlegum stuðningi við málefni Úkraínu og þrýstingi á rússnesk stjórnvöld. Þetta telst til tíðinda þar sem Trump hefur ekki alltaf gengið í takt við hina leiðtogana hvað Úkraínu varðar. GAGNRÝNIR ÁRÁSIR ÍSRAELA Á LÍBANON Í dag greindu bandarískir embættismenn fjölmiðlum einnig frá fj