Athöfnin fór fram í Björgunarmiðstöðinni á Selfossi í morgun en þar eru Brunavarnir Árnessýslu með höfuðstöðvar sínar.Útskriftarnemendurnir voru allir í sínu fínasta pússi enda 17. júní. Fjölmenni mætti við athöfnina en þeir sem voru að útskrifast úr grunnáminu fengu nældan silfurlitaðan skjöld í sig og þeir sem útskrifuðust úr atvinnu slökkviliðsnáminu fengu afhenta svokallaða öxi, sem var búið að merkja þeim.„Þetta er stærsti hópurinn sem við höfum útskrifað til þessa, glæsilegur hópur sem dreifist um alla sýsluna okkar,” segir Lárus Kristinn Guðmundsson varaslökkviliðsstjóri,En af hverju þessi mikli áhugi á að vera slökkviliðsmaður?Ég held að það sé bara svo gaman að vera slökkviliðsmaður í þessu glæsilega slökkviliði sem við eigum hér í Árnessýslu og fólk vill vera hjá okkur. Við eigum