Fjölmenn hátíðarhöld víða um land

Þrátt fyrir að sólskinið hafi vantað sums staðar skemmtu landsmenn sér konunglega á afmælisdegi lýðveldisins í alls konar hátíðarhöldum.Blómabíllinn markaði upphaf dagskrárinnar á Akureyri og lagði hann af stað frá Naustaskóla klukkan 11:00 í morgun. Kristinn Örn Jónsson, fyrrum ökukennari og núverandi blómabílstjóri, segir þetta orðinn hluta af hátíðarhöldunum hjá sér og mörgum bæjarbúum. Blómabíllinn hefur verið keyrandi um götur Akureyrar síðastliðin 6 ár á 17. júní en hann er þó ekki nýtt fyrirbæri. Þegar Kristinn var ungur drengur þótti það mikið sport að hlaupa á eftir blómabílnum um bæinn á 17. júní. UPPHAFIÐ AÐ BÍLADÖGUM Stærsta bílasýning landsins var opnuð í Boganum en þar má finna hin ýmsu tól og tæki, ekki bara bíla. Sýningin hefur verið hluti af akureyskri menningu allt frá
Fjölmenn hátíðarhöld víða um land

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd