Franskir fjölmiðlar slá upp í fyrirsögnum í dag Canicule, í tilefni öflugrar hitabylgju sem gengur yfir stóran hluta landsins næstu daga. Hitatölur gætu náð allt að 40 stigum víða í Evrópu um helgina.Frakkar búa sig undir hitabylgju sem von er á að gangi yfir landið á næstu dögum. Samkvæmt spám veðurfræðinga er hitabylgjan ein sú sterkasta sem mælst hefur þar í landi á þessum tíma árs. Spáð er 34 til 38 stiga hita víða frá suðvesturhluta landsins til norðausturs en á einhverjum svæðum gætu hitatölur náð allt að 40 stigum.Í aðdraganda hitabylgjunnar hafa heilbrigðisyfirvöld í Frakklandi gefið út appelsínugula viðvörun og hvatt íbúa sem viðkvæmir eru fyrir hita til að gæta varúðar. Þá hefur franska lestarfyrirtækið Transilien þegar varað almenning við mögulegum samgöngutruflunum sem hitinn g