Altækar reglur um símafrí gætu flækt málin

Formaður Félags grunnskólakennara er ekki viss um að altækar reglur um símafrí í grunnskólum eigi eftir að skila tilætluðum árangri. Hún segir önnur verkefni meira aðkallandi.Reykjavíkurborg hefur boðað símafrí sem tekur gildi í öllum grunnskólum borgarinnar í haust auk þess sem mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum.Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segir marga grunnskóla nú þegar hafa sett sér reglur í samráði við nemendur sem mikil sátt ríki um. Tilskipanir að ofan gætu flækt málin.„Skólar hafa verið að setja sér reglur um tækjanotkun með þátttöku nemenda,“ segir Mjöll. „Nemendur hafa verið þátttakendur og átt mikinn þátt í að móta þær reglur sem víða er búið að setja, ýmist í heilum sveitarfélögum
Altækar reglur um símafrí gætu flækt málin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd