Stærsta bílasýning landsins var opnuð í Boganum á Akureyri í dag. Sýningin hefur verið haldin í rúmlega 50 ár og markar upphaf Bíladaga.Jón Rúnar Rafnsson, formaður fornbíladeildar Bílaklúbbs Akureyrar, segir Bíladaga tækifæri fyrir samfélag bílaunnenda til þess að koma saman.Rakel Ósk Einarsdóttir er ein þátttakenda sýningarinnar í ár. Í dag sýndi hún gestum fornbílinn sinn sem er í toppstandi þrátt fyrir að vera rúmlega þrjátíu ára gamall.„Þetta er bara flottasti bíll á landinu, draumabíllinn minn. Hann er '83 Chevrolet C10 Short Bed. Og hann virkar, flottur bíll,“ segir Rakel.