Velferðarnefnd Alþingis lagði fram frumvarpið um fasteignamatið og hefur það verið sett á dagskrá þingsins á morgun. Leggur nefndin til að matið miðist við gangverð eigna í febrúar 2023 en við það var miðað í fasteignamatinu fyrir 2024. Ekki voru innheimt fasteignagjöld í bænum árin 2024 og fimm. Engin fasteignakaup áttu sér stað í fyrra fyrir utan uppkaup Fasteignafélagsins Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í bænum, segir í greinargerð með frumvarpinu. Þá segir að enn sé talsverð óvissa um hvenær næsti atburður verður og að ekki sé hægt að segja fyrir um hvenær hættuástandi í Grindavík ljúki.Grindvíkingar hafa margir mótmælt sumum aðgerðum stjórnvalda, nú síðast á Austurvelli í síðustu viku þar sem þeir gagnrýndu ákvörðun fasteignafélagsins Þórkötlu um að eftir ágústlok verði heimild fyrrverandi í