Rubio sendir Íslendingum þjóðhátíðarkveðju

EPA / LAURENT GILLIERON / POOLMarco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, óskar Íslendingum til hamingju með þjóðhátíðardaginn, í kveðju sem birt er á Facebooksíðu bandaríska sendiráðsins á Íslandi.Í kveðjunni minnist Rubio á varnarsamninginn milli ríkjanna og undirstrikar skuldbindingu Bandaríkjanna til varnarsamstarfsins sem hefur staðið í 75 ár. Þá séu efnahagsmál önnur meginstoð undir samskipti ríkjanna. Bandaríkin meti sambandið mikils og hlakka til að halda því áfram.
Rubio sendir Íslendingum þjóðhátíðarkveðju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd